Salthúsið - Veislur

Póstlistinn

Hér getur þú skráð þig á póstlista okkar, fengið sendar upplýsingar um skemmtanir og aðrar uppákomur.

Veislur

 

Salthúsið Restaurant

Aðstoðar  þig við skipulagningu og undirbúning við að halda  eftirminnilega veislu hvert sem tilefnið er. Árshátíðir, brúðkaup, afmæli, hanastél, fermingar, erfidrykkjur, móttökur, fundi, útskriftarveislur, þorraveislur, jólahlaðborð,  þemaböll, starfsmannaskemmtanir, námskeið, o.fl. o.fl.

 

Salthúsið Restaurant býður upp á skemmtileg húsakynni fyrir minni og stærri uppákomur, höfum þrjá mismunandi sali sem taka frá 30 manns í glæsilegum A La Carté sal, 70 manns á efri hæð og um 100 manns í sal á neðri hæð, samtals um 200 manns komast fyrir.

 

Við höfum tvo skjávarpa með góðri aðstöðu fyrir vinnufundi, þráðlaust net ásamt þremur aðskildum hljóðkerfum í Salthúsinu sem bjóða upp á góða aðstöðu fyrir hljómleikahald og dansleiki.

 

Salthúsið Restaurant er í góðri samvinnu við ATV 4x4 Fjórhjólaævintýri sem eru með frábærar ferðir við allra hæfi um nágrenni Grindavíkur. Viljum við benda ykkur á heimasíðuna ATV 4x4   www.atv4x4.is

 

Það skiptir okkur máli að veislan ykkar heppnist sem allra best við hvaða tilefni sem er, við höfum mikla ánægju að vinna með uppástungur frá viðskiptavinum okkar um draumaveisluna sína eða spennandi óvissuferð þar sem við getum boðið upp á fjör fram undir morgun.

 

Við munum leggja metnað okkar í að veislan verði sem eftirminnilegust.

 

Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu í síma

426 9700 -  699-2665

Verið hjartanlega velkomin

 

 
Salthúsið Restaurant  Stamphólsvegi 2,  240 Grindavík   Sími 426 9700 / 699 2665